Verkefni
Nánar
Lyfjaiðnaður og Dreifing
Undir þennan flokk falla verk sem snúa að lyfjaverksmiðjum og dreifingaraðilum lyfja s.s. apótekum. Aðkoma Lagnatækni hefur verið breytileg, hvað einstök verk varðar, en Lagnatækni hefur unnið að skipulagsvinnu lyfjaverksmiðja, forhönnun og hönnun margskonar lagna- og loftræstikerfa.
Nánar
Rannsóknarstofur
Hér er bæði um að ræða almennar efnarannsóknarstofur og öryggisrannsóknarstofur. Aðkoma Lagnatækni hefur verið mismunandi hvað einstök verk varðar.
Nánar
Sjúkrahús og Dvalarstofnanir
Starfsmenn Lagnatækni hafa komið að hönnun margra sjúkrahúss- og annarra heilbrigðistengds húsnæðis síðustu áratugina.
Nánar
Menningarbyggingar
Sameiginleg einkenni þeirra bygginga sem falla undir þennan flokk eru að þær gera kröfur um lágt hljóðstig, góða stjórnun á hitastigi og í sumum tilfellum einnig til stjórnunar á rakastigi.
Nánar
Skrifstofu- og iðnaðarbyggingar
Verk í þessum flokki falla undir vítt svið frá skrifstofu og þjónusturýmum yfir í sérhæfðari vöruhótel og atvinnuhúsnæði.
Nánar
Skólar og íþróttamannvirki
Undir þennan flokk falla allar gerðir skólabygginga auk íþróttamannvirkja og stoðrýma við þau.
Lagnatækni fagnar 30 ára afmæli
Þann 30. ágúst 2016 fagnaði Lagnatækni 30 ára starfsafmæli. Það sem hefur einkennt þennan tíma er að fyrirtækið hefur jafnt og þétt tekist á við flóknari verkefni sem hafa verið krefjandi og jafnframt skemmtileg.
Fréttir
Lagnatækni brá sér á ISH sýninguna í Frankfurt í mars 2019. Um er að ræða eina stærstu sýningu í heimi á sviði lagna- og loftræsikerfa, þar sem jafnar eru kynntar helstu nýjungar hjá framleiðendum búnaðar. Óhætt er að segja að ferðin hafi verið ánægjuleg og upplýsandi í alla staði.