Prófanir og stillingar tæknikerfa
Lagnatækni býr yfir áratuga reynslu í hverskyns mælingum og stillingum á tæknikerfum bygginga, bæði hérlendis og erlendis.
Mælibúnaður fyrirtækisins er kvarðaður á hverju ári og þjálfun og regluleg notkun tryggir hæfni starfmanna við þessa vinnu.
Niðurstöðum er síðan skilað í ítarlegri greinargerð sem einnig inniheldur tillögur til úrbóta ef með þarf.